|
Rafrænar umsóknir – nýjung á Íslandi OKKAR líftryggingar hefur tekið í notkun nýjan hugbúnað frá Dynax fyrir umsóknarferli trygginga og verða þar með fyrst íslenskra líftryggingafélaga sem gera viðskiptavinum sínum kleift að sækja um tryggingar rafrænt. Kerfið byggir á nánu samspili Dynamics AX og vefs þar sem allt upplýsingastreymi er í rauntíma milli viðskiptahugbúnaðar og vefs. Þessi nýjung hefur farið afar vel af stað og gerir umsóknarferlið mun auðveldara. Einnig verður úrvinnsla umsókna mun þægilegri í alla staði. Víða erlendis hafa viðskiptavinir líftryggingafélaga í æ ríkara mæli valið að sækja um sínar tryggingar rafrænt og því er löngu tímabært að bjóða uppá þennan möguleika á Íslandi. |
|
Fjölgar í notendahópi Nóra
Enn fjölgar í notendahópi Nóra, meðal félaga sem tekið hafa Nóra í notkun síðastliðnar vikur má nefna Íþróttabandalag Akraness, Golfklúbbinn Keilir, Knattspyrnufélagið Val, Dansrækt JSB og Fimleikafélag Hafnarfjarðar og bjóðum við þessi félög velkomin í hóp ánægðra viðskipta manna. Sjá má lista yfir notendur Nóra á vefsíðu Nóra nori.felog.is . |
|
Nýr hugbúnaður frá Dynax
Dynax ehf. hefur sett á markað nýjan hugbúnaðarlausn þar sem samspil viðskiptahugbúnaðar og vefs er í lykilhlutverki. Um að ræða „Eyðublaða“ ferli þar sem hægt er að setja upp í viðskiptahugbúnaði t.d. umsóknir sem varpast beint á vef fyrirtækis, þar sem viðskiptavinir geta fyllt út eyðublaðið og allar upplýsingar vistast í gagngrunn viðskiptahugbúnaðar í rauntíma, að sjálfsögðu er hægt að aðgangstýra þessu á ýmsan hátt t.d. með rafrænu auðkenni eða aðgang stýrt með rafrænni skjölun í gegnum heimabanka. |
|
Áfanga náð
Dynax ehf. öðlaðist nýlega réttindi sem sjálfstæður
söluaðili Microsoft Dynamics AX auk þess að vera Microsoft Registered Partner. Réttindin byggjast á kröfum um ákveðna þekkingu á Dynamics AX, SQL Server og Sure Step innleiðingaraðferð Microsoft. Að Dynax ehf. hafi náð þessum áfanga gerir fyrirtækinu kleift að veita viðskiptavinum sínum enn betri og skilvirkari þjónustu í nánu samtarfi við Microsoft. |
|
Nýr framkvæmdastjóri Dynax ehf
![]() Gunnlaug Ottesen hefur verið ráðin framkvæmdastjóri hugbúnaðarfyrirtækisins Dynax ehf. frá og með 1. júlí 2011, en hún tekur við af stofnanda fyrirtækisins, Birgi Gunnlaugssyni. Í tilkynningu vegna málsins segir að Gunnlaug hafi mikla reynslu úr hugbúnaðargeiranum. Hún er með BS gráðu í stærðfræði frá Háskóla Íslands og MSc gráðu í reiknifræði frá Florida International University. Hún hefur áður gengt starfi forstöðumanns viðskiptalausnasviðs HugarAx, starfað sem aðstoðarframkvæmdastjóri Landsteina Íslands og starfað hjá tölvudeild KEA.
|
NORI - Skráningar- og greiðslukerfi
Innleiðingum Nóra fjölgar ört þessa dagana, og stöðugt fjölgar þeim félögum sem hafa tekið kerfið í notkun. Félögin nota Nora til ýmissa skráninga- og söluverkefna og eru hér dæmi yfir nokkur viðbótar hlutverk sem Nori hefur fengið síðustu dagana fyrir utan hefðbundna iðkendaskráningu og greiðslu æfingagjalda:
|
Microsoft Dynamics AX tenging við CREDITINFO
Lágmarkar áhættu í viðskiptum
Dynax hefur í samvinnu við Creditinfo þróað lausn sem gerir fyrirtækjum kleift að skoða upplýsingar frá Creditinfo inn í Microsoft Dynamics AX. Upplýsingarnar veita yfirsýn yfir CIP áhættumat og vanskil viðskiptavina. Kerfið er öflug viðbót við viðskiptavinakerfi Dynamics AX sem mun skila hagræðingu og ávinningi á skömmum tíma. Creditinfo lausn er nú til prófunar og gert er ráð fyrir almennri dreifingu fyrir AX 2009 hefjist 10.ágúst, 20 ágúst fyrir AX4 og 10. september fyrir AX3.
Nánari upplýsingar má fá hjá söludeild Dynax í síma 412-9809 eða sala@dynax.is.
|
Nýtt tryggingarkerfi í AX2012 OKKAR líftryggingar hf. hefur gert samning við Dynax ehf um gerð nýs tryggingarkerfis sem smíðað verður í Dynamics AX 2012. Kerfið verður algjörlega hannað í samvinnu starfsmanna Okkar og Dynax og mun taka til allra þátta trygginga hjá Okkar. Við þróun og hönnun verður nýtt öll nýjasta tækni sem stendur til boða í Dynamics AX og verður þar samspil vefs og AX í stóru hlutverki. Dynax býður Okkar velkomið í hóp viðskiptavina og væntir mikils af samstarfi við öflugt og framsækið tryggingarfélag. |
|
Rafrænar umsóknir – nýjung á Íslandi OKKAR líftryggingar hefur tekið í notkun nýjan hugbúnað frá Dynax fyrir umsóknarferli trygginga og verða þar með fyrst íslenskra líftryggingafélaga sem gera viðskiptavinum sínum kleift að sækja um tryggingar rafrænt. Kerfið byggir á nánu samspili Dynamics AX og vefs þar sem allt upplýsingastreymi er í rauntíma milli viðskiptahugbúnaðar og vefs. Þessi nýjung hefur farið afar vel af stað og gerir umsóknarferlið mun auðveldara. Einnig verður úrvinnsla umsókna mun þægilegri í alla staði. Víða erlendis hafa viðskiptavinir líftryggingafélaga í æ ríkara mæli valið að sækja um sínar tryggingar rafrænt og því er löngu tímabært að bjóða uppá þennan möguleika á Íslandi. |
|
|
Fjölgar í notendahópi Nóra
Enn fjölgar í notendahópi Nóra, meðal félaga sem tekið hafa Nóra í notkun síðastliðnar vikur má nefna Íþróttabandalag Akraness, Golfklúbbinn Keilir, Knattspyrnufélagið Val, Dansrækt JSB og Fimleikafélag Hafnarfjarðar og bjóðum við þessi félög velkomin í hóp ánægðra viðskipta manna. Sjá má lista yfir notendur Nóra á vefsíðu Nóra nori.felog.is .
Nýr hugbúnaður frá Dynax
Dynax ehf. hefur sett á markað nýjan hugbúnaðarlausn þar sem samspil viðskiptahugbúnaðar og vefs er í lykilhlutverki. Um að ræða „Eyðublaða“ ferli þar sem hægt er að setja upp í viðskiptahugbúnaði t.d. umsóknir sem varpast beint á vef fyrirtækis, þar sem viðskiptavinir geta fyllt út eyðublaðið og allar upplýsingar vistast í gagngrunn viðskiptahugbúnaðar í rauntíma, að sjálfsögðu er hægt að aðgangstýra þessu á ýmsan hátt t.d. með rafrænu auðkenni eða aðgang stýrt með rafrænni skjölun í gegnum heimabanka.
Dynax ehf. öðlaðist nýlega réttindi sem sjálfstæður
Réttindin byggjast á kröfum um ákveðna þekkingu á Dynamics AX, SQL Server og Sure
Step innleiðingaraðferð Microsoft. Að Dynax ehf. hafi náð þessum áfanga gerir
fyrirtækinu kleift að veita viðskiptavinum sínum enn betri og skilvirkari
þjónustu í nánu samtarfi við Microsoft.

Viltu hámarka afköst tölvukerfisins og lágmarka kostnað?
Viltu vita hver kostnaður við rekstur tölvukerfisins verður næstu árin og þurfa ekki að reikna með Pí í öllum áætlunum ?
Sérstaða Dynax ehf byggir á áralangri reynslu starfsmanna sinna af rekstri tölvudeilda hjá stærstu fyrirtækjum landsins ásamt djúpri þekkingu á vél og hugbúnaði. Við veitum rekstrar-, nýsmíði og viðhaldsþjónustu við Dynamics Ax/Nav/Concorde ásamt því að bjóða gagnagrunnsþjónustu – Oracle/SQL (rekstur og viðhald) og sérfræðiráðgjöf við skipulagningu tölvukerfa. Við erum fulltrúar viðskiptamanna okkar í samskiptum við birgja og aðra þjónustuaðila og tryggjum lágmarkaðan kostnað vegna hugbúnaðarleyfa, vélbúnaðar, þjónustu og afleidds kostnaðar.
Við bjóðum nýja þjónustu fyrr Microsoft Dynamics bókhaldskerfin:
- Rekstur bókhaldskerfis 365 daga á ári, viðhald og nýsmíði. Fast mánaðargjald, engin tímamæling. (tilboð)
- Viðhald og rekstur tengdra kerfa s.s. innri síðna, Share Point o.sv.frv.
- Eftirlit og viðhald gagnagrunna tengdum bókhaldskerfi
- Fræðsla og námskeið fyrir notendur.
- Breytingastjórnun
Við bjóðum ráðgjöf við skipulagningu og innleiðingu tölvukerfa:
- Val á hugbúnaði
- Nauðsynlegur vélbúnaður með tilliti til hugbúnaðar
- Samningar við birgja og þjónustuaðila
- Eftirlit með innleiðingu og uppsetningu
- Vandamálagreining og lausnir
